Stella gella
Dagsetning
9. febrúar 2012
23.05.2009 12:17:53 / stella

Komið öll blessuð og sæl, eða þeir sem kíkja enn þá á þessa síðu. Ekkert að frétta af mér en af ykkur??


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 20:47:20 / stella

Gleðileg jól

Kæru vinir
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
ég vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðarnar
jólaknús
Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 19:55:02 / stella

Pása

Vá hvað það er langt síðan ég kíkti á þessa síðu. En ég er í bloggpásu;)
kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 23:19:12 / stella

Afmælið

Já nýtt look er í svona appelsínugulu stuði og svo minni ég bara á afmælið okkar næstu helgi, það er að segja minni þá á sem við buðum;). Held að ég hafi ekki gleymt neinum, ef svo er þá skal sá hinn sami gefa sig fram;).
Jæja hlakka til að sjá ykkur
kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 15:37:35 / stella

Hvað segið þið gott??

Hvað segið þið?? Ekkert að gerast hjá ykkur? Ekki heldur hjá mér. Fór á ballið síðustu helgi og það var mjög gaman. Sé ekki eftir þeirri ferð;) Segi ykkur kannski seinna...!!!! Við vinkonurnar erum búnar að vera á fullu að plana afmælið, senda boðskort, ákveða mat og vín. Held að allt sé að verða klárt:d. Fór í salinn í dag þannig að við erum bara klárar í slaginn. Annars er ég ekki að nenna þessu bloggi held að ég hafi nú sagt þetta áður en núna er ég ekki að nenna þessu. Sjáum til hvað gerist. Annars bara góða helgi allir saman og það væri nú gaman að heyra frá ykkur!!!
kveðja stella

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 21:32:03 / stella

Hvað á ég að gera???

Hvað á ég að gera? Á ég að vera róleg um helgina eða á ég að fara í Þorlákshöfn til Önnu í partý og svo á ball á Selfossi?? Veit ekki!! Hvað segið þið?
Var að koma heim, varð að fara að taka á móti ,,strákunum okkar" og þvílíkur mannfjöldi, örugglega fleiri en á 17.júní. Það er á svona augnablikum sem maður er stoltur af því að vera Íslendingur;). Ég er sammála Ólafi Stefánsyni með það að við erum heppin að hafa fæðst á Íslandi. En annars er að drepast úr þreytu eftir vinnuna, brjálað að gera. Er að ala upp 16 stykki af börnum fæddum 2004 og þau eru sko fjörug en mjög skemmtileg. Veturinn legst bara vel í mig það er að segja ef það fæst starfsmaður frá 13 til 17, ef þið þekkið einhvern sem vantar vinnu, talar íslensku og finnst gaman að vinna með börnum þá endilega látið mig vita!! Jæja býð spennt eftir svari frá ykkur við spurningu minni......
kveðja Stellagella

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 13:55:12 / stella

Áfram Ísland

Áfram Ísland, nú er að sýna hvað í ykkur býr strákar. Ég ætla að vakna í fyrramálið, finnst það reyndar vera skylda að allir Íslendingar horfi á leikinn og sendi góða strauma til Kína. Ég segi bara áfram Ísland!!!!
Jæja þá er komið að því ég er að byrja í skóla eftir fimm ára pásu. Byrja á mánudaginn:s. Ég verð í fríi á mánudögum á launum til þess að geta lært og farið í skólan þegar það eru innilotur. Geggjað!! Það er komið lesefni svo að eftir leikin á morgun þá þarf ég að fara að LÆRA, já það er mjög langt síðan ég þurfti að gera þess:s. Þetta verður örugglega bara gaman og gott að læra meira. En ég segi bara góða helgi, menningarnótt, farið varlega
Kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 14:56:32 / stella

12.ágúst 2008

Blessuð öll sömul, þá er sumarfríið á enda og ég orðin þrjátíu ára! Átti afmæli í gær þeir sem gleymdu því;). Annars er ég búin að hafa það rosa gott í fríinu, fór til Costa del Sol, fór á Flúðir, Laugarvatn, Þorlákshöfn og var hérna í Reykjavikinni8). Ég mætti tvo daga í síðustu viku í vinnuna og fór svo aftur í þriggja daga frí 11. ágúst til þess að fara í klippingu og litun, 12.ágúst því að þá á ég afmæli og 13. ágúst til að jafna mig eftir afmælið!! Ég bauð Hofgyðjum heim til mín milli 10 og 12, þær notuðu kaffitímana sína til þess að koma í kaffi hingað á Hofteiginn. Svo komu Rut og Magga í afganga í hádeginu, ég og Magga horfðum svo á leikinn og þvílíkur leikur. Áfram Ísland. Eyrún kíkti með Jóhönnu og Anna Helga kom einnig. Um kvöldið bauð ég svo fjölskyldunni minni og hinni fjölskyldunni minni (Katrínu og co.), ömmu og Ása í Mexicanska kjúklingasúpu. Heppnaðist þrusu vel þó ég segi sjálf frá. Anna Kristín kíkti svo eftir matinn þannig að það voru ansi margir sem létu sjá sig hérna á Hofteigunum. Ég vona bara að allir hafi farið saddir og sælir heim;) Eins og þið sjáið er ég orðin nettengd svo að ég verð bara hérna í sófanum með töluna í dag mjög langt síðan ég fór á netið.
Jæja ætla að hætta þessari vitleysu
kveðja Stella

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 10:37:16 / stella

Verslunarmannahelgin

Ég er farin í útileigu;) Þeir sem vilja vita hvert verða bara að bjalla á mig!! Njótið helgarinnar og farið varlega;)
Kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 12:49:02 / stella

!!!!!!!!

Þá er ég komin heim frá costa del sol. Þetta var frábær ferð í alla staði, bjór, hiti, sól og afslöppun8). Getur maður beðið um eitthvað meira;). Ég vona að þið hafði haft það gott í sumar, ég trúi því bara ekki að það sé að koma ágúst. Þá á ég nefnilega afmæli, bara trúi ekki að það sé komið að þessu, ég að verða þrjátíu. OMG!!!! Já held að ég haldi bara áfram að telja niður eins og ég og Katrín höfum gert frá því við urðum 25, þannig að þá er ég bara að verða tvítug;);). En svo er það verslunarmannahelgin, langar rosalega til Eyja en það er uppselt til baka á mánudeginum:( Verð að sætt mig við að gera eitthvað annað, kíki örugglega á Flúðir og í Þorlákshöfn það er örugglega það næsta sem ég kemst Eyjum;). Jæja ætla að fara í sólbað 8)
kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 20:26:02 / stella

Sumarfrí

Ég er komin í sumarfrí8). Hafið það gott í sumar 
kveðja Stella

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 18:15:10 / stella

Ég er flutt

Ég er flutt:d  

Petra er 30 ára í dag, til hamingju með daginn Petra

kveðja Stella

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 19:46:29 / stella

Allt að gerast

Íbúðin að verða tilbúin, búið að mála og þrífa svo að það verður hafist handa við að flytja í vikunni. Fór í Þorlákshöfn í gær til Önnu Kristínar og á ball  á Eyrarbakka. Anna búin að sjá fyrir öllu og var búin að panta rútu fram og til baka fyrir mannskapinn:d. Ég skemmti mér konunglega eins og ég gera alltaf í sveitinni. Dagurinn í dag er ekki eins góður er frekar þunn og þreytt, ætla snemma að sofa í kvöld. Vinna á morgun en það eru tvær vikur í sumarfrí8) Er bara orðin frekar þreytt og þarfnast þess að komast í frí. En ég þrauka þessar tvær vikur. Ekki meira í bili frá mér, veit ekki hvað ég nenni að blogga mikið í sumar það kemur bara í ljós. Hafið það gott
hej hej

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 18:33:28 / stella

Íbúðin!!!!

Erum búnar að fá íbúðina, þannig að nú verð ég á fullu að gera hana klára. Helgin er ekki inni í myndinni því hún Dóra er að fara að útskrifast úr Kennó, við ætlum að fara út að borða og svo fer maður kannski á Nasa, hver veit. Þannig að það er óráðið hvenær við flytjum inn. Kemur í ljós!! Svo er opið hús í leikskólanum frá 15 til 18 á föstudaginn allir velkominir og svo er ég að fara út að borða með 1. deildinni og hver veit nema maður skralli eitthvað með þeim. Er bara ótrúlega dösuð eftir þetta frábæra veður (ég er ekki að kvarta) og kannski smá útitekin8). Gaman gaman. Jæja er í skýjunum og já gleymdi að segja ykkur panntaði mér ferð til Costa del sol í dag með Eydísi bekkjó í viku, förum 14. júlí. Jibbí8). Bara gaman.
Kveðja Stella 

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 19:39:47 / stella

Sveitin

Það var bara helv... gaman í sveitinni;). Við byrjuðum á að fara í partý og svo á ball. Á ballinu var mjög gaman bara of mörg skot tekin. Þegar ballinu lauk rukum við upp í bíl og vorum keyrðar í eftir partý. Mjög skemmtilegt partý það og var það búið um sex að ég held en þá var haldið heim til Önnu og haldið áfram fram til átta að ég held. Allavegana var maður farin að drekka hvítvín á stút;). Við sofnuðum svo dálítið mörg í rúminu og það var ekki mikið pláss en ég svaf nú ágætlega en vaknaði dálítið þunn8). Fengnum okkur pizzu og keyrðum svo heim, þakkaði bara fyrir að Petra var að keyra ekki ég. Er enn þá að jafna mig og verða örugglega alla vikuna að því.
Kveðja Stella

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 32420
Klukkan
Leitarbox